Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

1.200 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Uppskriftin er á íslensku.

Nótt eftir nótt fullorðinspeysa

Peysan er prjónuð ofan frá og niður, í hring með laskaútaukningu. Mynsturmyndir eru aftast í uppskrift.

Í fellilistanum hér fyrir ofan getur þú valið hvort þú vilt eingöngu rafrænt eintak, eða hvort þú vilt rafrænt eintak auk þess að fá útprentað eintak sent til þín með bréfpósti. 

Efni

Þessar tegundir ganga allar:
- Katia Merino Tweed
- Katia Merino Aran
- Katia Merino Aran Natur
- Special Aran with Wool

Stærðir og magn af garni
XS: 650 gr
S: 650-700 gr
M: 750 gr
L: 850 gr
XL: 900 gr

ATH að uppgefið magn af garni er einungis viðmið þar sem við prjónum öll misfast/-laust.

Það sem þarf
- hringprjónar nr. 5,5-6 (40, 80 og 100 sm)
- hringprjónar nr. 5-5,5 (stroff)
- sokkaprjónar nr. 5,5-6
- nál til frágangs
- prjónamerki

Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
XS: 35 sm
S: 37 sm
M: 39 sm
L: 41 sm
XL: 45 sm

Ummál á bol
XS: 99 sm
S: 105 sm
M: 110 sm
L: 115 sm
XL: 121 sm

Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
XS: 41 sm
S: 43 sm
M: 44 sm
L: 46 sm
XL: 49 sm

Ummál á ermum
XS: 34 sm
S: 36 sm
M: 38 sm
L: 41 sm
XL: 43 sm

Prjónfestan í þessari peysu er sú að 18 lykkjur á prjóna nr. 5,5 gera 10 sm með því að nota Merino 100% frá Katia.

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista