Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

1.200 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Frostrós barnapeysa

Jólapeysa Stroff árið 2021 heitir Frostrós.

Peysan er prjónuð ofan frá og niður, í hring með mynsturbekk í berustykki. Ermar eru prjónaðar með sléttu prjóni.

Þessi uppskrift er snúin.
Gæti rifið í hjá þeim reynsluminnstu, en þeir sem vanari eru rúlla henni upp án þess að blikna.

Efni
Prime Merino frá Katia.
Einnig hægt að nota Arles Merino frá Katia, eða Merinocot eða Super Soft frá Lana Gatto

Stærð Aðallitur Aukalitur
6-12 mán 150 g 50 g
1-2 ára 200 g 50 g
2-4 ára 200 g 50 g
4-6 ára 250 g 50 g
6-8 ára 250 g 50 g
8-10 ára 300 g 50 g

 

Það sem þarf
- Hringprjónar nr. 5 og 5,5 (40 og 80 cm)
- Sokkaprjónar nr. 5 og 5,5
- Nál til frágangs
- Prjónamerki

Lengd bolur, frá handvegi
6-12 mán: 18 cm
1-2 ára: 20 cm
2-4 ára: 23 cm
4-6 ára: 28 cm
6-8 ára: 31 cm
8-10 ára: 34 cm

Ummál bolur
6-12 mán: 62 cm
1-2 ára: 67 cm
2-4 ára: 69 cm
4-6 ára: 73 cm
6-8 ára: 82 cm
8-10 ára: 91 cm

Lengd ermar, frá handvegi
6-12 mán: 16 cm
1-2 ára: 18 cm
2-4 ára: 20 cm
4-6 ára: 23 cm
6-8 ára: 26 cm
8-10 ára: 30 cm

Ummál ermar
6-12 mán: 21 cm
1-2 ára: 22 cm
2-4 ára: 23 cm
4-6 ára: 24 cm
6-8 ára: 28 cm
8-10 ára: 31 cm

Prjónfestan í þessari peysu er sú að 18 lykkjur á prjóna nr. 5,5 gera 10 cm með því að nota Prime Merino frá Katia.

 

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista