Bette nor
Í bókinni eru fallegar uppskriftir á ungabörn á aldrinum 3-24 mánaða. Samtals eru 8 uppskriftir af flíkum fyrir bæði stelpur og stráka, ásamt 4 uppskriftum af notalegum teppum sem henta fyrir bílstóla og kerrur.
Uppskriftirnar eru rúmgóðar í sniðinu þannig að börnin geta hreyft sig eins og þau vilja án óþæginda. Peysurnar eru síðan með tölur að framan eða aftan svo auðvelt sé að klæða í eða úr peysunum. Allar uppskriftirnar eru prjónaðar með garni frá Isager.
Lengi hefur verið hefð fyrir því að undirbúa komu nýs barns með því að búa til teppi eða flíkur. Einu sinni var venjan að allt væri handgert, en nú til dags er lúxus að geta handprjónað. Að geta búið til handgerðar flíkur á nýja manneskju sem er á leiðinni, eða sem er nú þegar komin í heiminn, er ómetanlegt.
Höfundur: Annette Danielsen
Útgáfuár: 2022
Tungumál: danska
Gerð: mjúkspjalda
Blaðsíður: 72