Þessar æðislegu körfur eru fullkomnar til að geyma alls konar garn, handavinnu eða prjónaverkefni. Körfurnar eru handgerðar af konum frá Norður-Gana, sem auk landbúnaðar eru háðar körfuframleiðslu sem lífsviðurværi. Hér er hægt að lesa meira um körfuframleiðsluna (á dönsku).
Körfurnar eru einstakar og eru framleiddar í mörgum mismunandi litum og mynstrum. Þessi karfa er u.þ.b. 28 cm í þvermál. Handfangið er svart og úr geitaleðri en karfan sjálf er úr endurunnu efni og er marglit.
Hammershus Fairtrade vinnur að sjálfbærri þróun og minnkun fátæktar í Afríku með framleiðslu, hönnun, innflutningi og sölu á Fairtrade vörum, stuðningi við framleiðendur og samstarfsaðila í Afríku, og ýmis konar viðburðum og fjáröflun.
Hvað er Fairtrade? Fairtrade er bein leið til að styðja við fátæka framleiðendur, en einnig óbein leið til að styðaja við réttlát og sjálfbær viðskipti í heiminum. Fairtrade er skilgreint sem viðskiptasamstarf sem byggir á gagnsæi, virðingu og sanngirni. Meiri upplýsingar um Fairtrade (á dönsku).