Handcraft eftir Helgu Isager og Helgu Jónu Þórunnardóttur
Handverk er samstarf milli Helgu Jónu Þórunnarsdóttur og Helgu Isager og inniheldur grunnuppskriftir að vettlingum og hönskum, og ógrynni af mismunandi útgáfum og mynstrum.
Þær skrifa í formála bókarinnar (þýtt úr dönsku):
„Hugmyndin að „Handcraft“ spratt upp úr sameiginlegri ástríðu okkar fyrir tækni og smáatriðum. Við höfum kennt saman í nokkur ár og höfum sömu vönduðu nálgunina í handverki. Oft er hægt að betrumbæta mynstur þannig að lykkjurnar snúi rétt, eða kannski þarf að prjóna nokkrar lykkjur í viðbót til að fá fullkomna kanta. Hugsanlega erum við þau einu sem sjáum það, en það er gleðin við að búa til fullunnið handverk sem knýr okkur báðar áfram í vinnunni og gerir það að verkum að peysan eða trefilinn nýtist í mörg ár.
Okkur langaði að gera bók þar sem við gætum safnað saman nokkrum af þeim aðferðum og mynstrum sem okkur líkar best við og komumst að því að það var tilvalið að prjóna vettlinga og hanska, því í litlu prjónaverkefni kemst maður í gegnum mikla tækni.“
Blaðsíður: 112
Tungumál: danska
Útgáfuár: 2021