Prjónaðu afmælisgjöf og búðu til afmælisskraut með Klompelompe! Fátt er jafn vinsælt og handprjónaðar afmælisgjafir. Og hvers vegna ekki að skreyta fyrir afmælisveisluna sjálfa með innblástur frá Klompelompe?
Í þessari bók er að finna skapandi hugmyndir bæði fyrir barnaafmælið og fullorðinsafmælið. Í bókinni eru uppskriftir að flíkum sem gaman er að gefa. Einnig er að finna margar hugmyndir fyrir afmælisveislur fyrir allt árið. Hinir vinsælu bangsar Klompelompe koma einnig í nýjum týpum sem gætu orðið vins ælar afmælisgjafir. Í bókinni eru einnig fallegar myndir sem veita innblástur fyrir afmæli. Í bókinni má líka finna uppskriftir af mat sem gaman er að hafa á afmælum.
Höfundar: Torunn Steinsland, Hanne Andreassen Hjelmas
Útgáfuár: 2021
Tungumál: norska