Merino Nylon Sock er mjög gott og sterkt sokkagarn, 75% merínó ull og 25% nylon gera garnið að mjúku en í senn mjög endingargóðu garni, sem hentar með eindæmum vel í sokka – en einnig í sjöl, peysur, toppa, trefla, þunna vettlinga.. eða hvaðeina þú ætlar að prjóna eða hekla. Merino Nylon Sock er handlitað garn.
Innihald: 75% merino ull (sw) + 25% nylon
Vigt: 100 g
Metralengd: u.þ.b. 425 m í 100 g
Prjónastærð: 2,5 - 3,5 mm
Prjónfesta: 27-29 lykkjur
Grófleikaflokkur: 1 - fingering
Þvottaleiðbeiningar: Mælt er með handþvotti uppúr volgu/köldu vatni eða léttum hring í vél. Leggið flatt til þerris.
Framleiðsluland: Handlitað á Ísland
Ath! Myndirnar eru eingöngu viðmið af litunum, en vegna þess að garnið er handlitað er hver litun einstök.
Merino nylon sock er einnig til í 50 g hespum.