
Þjóðbjörg
Hönnuður: Margrét Halldórsdóttir
Í peysunum mínum reyni ég að halda í gamlar hefðir. Munsturbekkirnir í peysunum frá Móakoti eru hefðbundnir, margir gamlir, aðrir gleymdir eða lítið notaðir. Allir eiga þeir þá virðingu skilið að lifa áfram með næstu kynslóðum.
Stærðir:
S (M) L
Yfirvídd 86 (93) 98 cm
Lengd á 40 (42) 43 cm
Ermalengd 47 (48) 49 cm
Efni:
Einband - 50 g dokkur (250 m)
Blá peysa:
Grunnlitur:
Einband svartur 0059
Munsturlitir:
Einband 1026 fölgrár eða 1027 ljósgrár
Prjónar:
Hringprjónar nr. 3,5 mm - 40, 60 og 80 cm
Sokkaprjónar nr. 3,5 mm
Heklunál nr. 2,5-3 mm
Tölur: 9-10 málmtölur 14-16 mm
Prjónafesta:
10 x 10 cm: 24 L og 36 umf slétt prjón á nr. 3,5 mm
Uppskriftin er útprentuð og kemur í fallegu umslagi. Leðurmiði með merki Móakot fylgir með.