Amma mús Reykjavík Fákafeni 9

Opið 10-18 virka daga

Sími 511 3388

Amma mús Akureyri Brekkugötu 5

Opið 13-17 mánudaga, 11-17 þriðjudaga-föstudaga
& 11-15 laugardaga

Sími 510 8005

Prjónataska M handgerð - hnetubrún

15.695 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Prjónataska M er handgerð, stílhrein taska sem er kjörinn geymslustaður fyrir prjónaverkefnið þitt. Taskan er gerð úr sterku, þykku bómullarefni. Bómullarefnið er burstað sem gerir áferðina á töskunni mjúka.

Taskan er með fínum botni sem hjálpar til við að koma ýmsu fyrir í töskuna á sama tíma og hægt er að halda skipulagi á hlutunum. Hægt er að koma fyrir 2-3 dokkum ásamt litlu til meðalstóru prjónaverkefni. Í töskunni eru einnig tvö lítil hólf fyrir t.d. sokkaprjóna, skæri og penna, og svo tvö meðalstór hólf fyrir saumamerki, mæliband, hringprjóna, farsíma eða litla spjaldtölvu. Taskan er lokuð með bómullarstreng og svo eru leðurhandföng svo auðvelt sé að halda á henni.

Einnig eru tveir málmhringir á töskunni þannig hægt er að festa axlaról á hana og hafa hana þannig á öxlinni svo auðvelt sé að taka hana með sér hvert sem er. Athugið að axlarólin fylgir ekki með.

Leðrið á handföngunum er brúnt á litinn og verður mýkra við notkun. 

Mál á tösku:

Breidd á botni: 22 cm

Breidd efst: 30 cm

Hæð: 25 cm

Handfang: 12 cm

Efni:

75% bómull

25% leður

 Þvottaleiðbeiningar: Handþvottur

Um Minuk

Minuk sérhæfir sig í fallegum, handgerðum töskum og veskjum sem framleiddar eru í litlu leðurverkstæði í Hamborg, Þýskalandi.
  
Minuk er búið til að af Antje Arens. Antje bæði hannar og handgerir töskurnar á verkstæði sínu, ásamt litlu teymi af hæfileikaríku handverksfólki. Fyrirtækið státar sig af því að vera "slow fashion" eða hæg tíska, þar sem vörurnar eru ekki fjöldaframleiddar og fellur lítill sem enginn úrgangur til í framleiðslu varanna. 

Hver og ein taska er handgerð: hönnun, sníðagerð, klipping og saumaskapur er allt unnið á leðurverkstæðinu í Hamborg. Sjáflbær nýting á auðlindum eru Antje kær og þess vegna leggur hún mikla áherslu á uppruna efnanna sem hún notar og vandlega vinnslu þeirra, bæði hvað varðar afganga og umbúðir. Minuk notar eingöngu leður sem sútað með náttúrulegum efnum úr jurtaríkinu og leðrið þess vegna krómfrítt. 
sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista