Grænkeravænir dúskar með bandi (2 þræðir) sem hægt er að nota til að festa dúskinn. Ekkert mál er svo að taka dúskinn af ef það þarf að t.d. þvo flíkina. Best er að þræða snærin tvö í gegnum flíkina og binda slaufu. Einnig getur verið gott að þræða í gegnum tölu á bakhlið flíkarinnar og binda svo slaufu.
Til að fríska upp á dúskinn má nota greiðu til að greiða í gegnum hárin.
Dúskarnir eru úr 90% polyakrýl og 10% polyester.
Stærð: u.þ.b 11-14 cm