Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
Vík unisex fullorðinspeysa
VÍK unisex fullorðinspeysa er hluti af VÍK línunni frá MeMe Knitting. Peysan er prjónuð í hring frá hálsmáli með laskaútaukningum. Gerðar eru stuttar umferðir til þess að móta hálsmálið. Einföld en falleg blanda af sléttu- og perluprjóni.
Dömu |
Herra |
Ummál peysunnar |
Garn* Reborn Wool / Double Sunday + Mohair |
XXS |
- |
83 cm |
400 g / 350 g + 100 g |
XS |
- |
89 cm |
500 g / 400 g + 100 g |
S |
XXS |
94 cm |
500 g / 450 g + 100 g |
M |
XS |
100 cm |
600 g / 450 g + 125 g |
L |
S |
111 cm |
600 g / 500 g + 125 g |
XL |
M |
117 cm |
700 g / 550 g + 125 g |
XXL |
L |
122 cm |
700 g / 550 g + 150 g |
- |
XL |
128 cm |
700 g / 600 g + 150 g |
- |
XXL |
133 cm |
800 g / 650 6 + 175 g |
*Athugið að um áætlað magn af garni er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað er við Reborn Wool Recycled frá Kremke og Double Sunday haldið saman með mohair.
GARN
Stakur þráður af Reborn Wool Recycled frá Kremke (100 gr/200 metrar) eða einn þráður af Double Sunday frá Sandnes (50 gr/108 m) eða Scout frá Kelbourne Woolens (100 gr/250m) haldið saman með einum þræði afSilky Kid Mohair frá Kremke (25 gr/210 m).
ÞAÐ SEM ÞARF
- 4,5 mm hringprjón / 40 og 80/100 cm
- 4,0 mm hringprjón / 40 og 80/100 cm
- 4,5 mm sokkaprjóna
- 4,0 mm sokkaprjóna
- Prjónamerki
PRJÓNFESTA
10 cm = 18 lykkjur mynsturprjón á 4,5 mm prjóna.