Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

1.200 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Ilmur fullorðinspeysa

Þessi peysa er prjónuð ofan frá og niður, í hring, með gatamynstri í berustykki. Ermar og bolur er prjónað með sléttu prjóni. Stroff í hálsmáli, ermum og á bol er prjónað með snúnum sléttum lykkjum.

Þessi uppskrift er krefjandi: Uppskrift sem reynsluboltar finna aðeins fyrir. Nýliðar ættu hins vegar að eiga þolinmóðan sérfræðing á kantinum þegar þeir reyna við þessa.  

 #ilmurpeysa 

Efni
Einn þráður af Patagonia frá Lana Gatto.

Einnig er hægt að velja að nota einn þráð af Katia Merino Aran saman með þræði af Mohair, t.d. Angel by Permin eða Silk Mohair frá Lana Gatto. 
Í staðinn fyrir Merino Aran er vel hægt að velja t.d. Katia Merino Tweed, Maxi Soft eða Nuovo Irlanda frá Lana Gatto og fleiri tegundir. 

Stærðir og magn af garni

Patagonia Aran&Mohair
Stærð Patagonia Merino Aran Mohair
XS 600 g 400 g 75 g
S 700 g 500 g 100 g
M 700 g 500 g 100 g
L 800 g 600 g 125 g
XL 900 g 700 g 150 g
XXL 900 g 700 g 150 g


Það sem þarf

- Hringprjónar nr. 7 (40, 80 og 100 cm langir)
- Hringprjónar nr. 6 (40 og 80 cm langir)
- Nál til frágangs
- Prjónamerki

Lengd bolur, frá handvegi
XS: 28 cm
S: 29 cm
M: 30 cm
L: 31 cm
XL: 32 cm
XXL: 33 cm

Ummál bolur
XS: 95 cm
S: 100 cm
M: 107 cm
L: 111 cm
XL: 117 cm
XXL: 121 cm

Lengd ermar, frá handvegi
XS: 39 cm
S: 40 cm
M: 41 cm
L: 42 cm
XL: 43 cm
XXL: 44 cm

Ummál ermar
XS: 33 cm
S: 34 cm
M: 35 cm
L: 37 cm
XL: 40 cm
XXL: 41 cm

Prjónfestan í þessari peysu er sú að 14 lykkjur á prjóna nr. 7 gera 10 cm með því að nota Patagonia frá Lana Gatto. 

 

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista