Puno er garn úr alpakka, ull og polyamide sem er létt og dúnmjúkt ásamt því að vera frekar gróft. Polyamide þráðurinn styrkir garnið á meðan alpakka og merino ullin gera peysuna mjúka og létta. Flíkur sem prjónaðar eru úr þessu garni verða léttar, loftkenndar en jafnframt hlýjar.
Innihald: 68% baby alpakka, 10% extra fin merino, 22% polyamid
Vigt: 50 gr.
Metralengd: u.þ.b 110 metrar
Prjónastærð: 5 - 6 mm
Prjónfesta: 14 - 16 lykkjur
Grófleikaflokkur: 5 - chunky
Þvottaleiðbeiningar: Ullarprógram í þvottavél, 30 gráður.
Framleiðsluland: Noregur