Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga

Sími 511 3388

850 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Þessi uppskrift er á íslensku.

Hallo heimur krakkahúfa

Húfan er prjónuð neðan frá og upp, í hring, með gatamynstri.

Þessi uppskrift er einföld.

Efni:
Húfan er prjónuð með einum þræði af Bamboo Wool og einum þræði af Mohair frá Icewear EÐA Heavy Merino frá KFO.

Einnig hægt að nota:
- Katia Merino Sport 
- Special Aran With Wool (Amma Mús)
- Puno frá Rauma (Amma mús)
- Mitu frá Rauma með 1 þræði af Mohair (Amma mús)
- Katia Merino 100% með 1 þræði af Mohair 

Stærðir og magn af garni

Stærðir Bamboo Wool Mohair
6-12 mán 50 g (100m) 25 g
1-2 ára 100 g (200m) 25 g
2-4 ára 100 g (200m) 25 g
4-8 ára 100 g (200m) 25 g
9 ára+ 150 g (300m) 50 g

 

Stærðir Heavy Merino frá KFO
6-12 mán 50 g
1-2 ára 100 g
2-4 ára 100 g
4-8 ára 100 g
9 ára+ 150 g


Það sem þarf
- Hringprjónn nr. 4.5 (30 eða 40 cm langur)
- Sokkaprjónar nr. 4.5
- Nál til frágangs
- Prjónamerki

Ummál
6-12 mán: 33 cm
1-2 ára: 36.5 cm
2-4 ára: 40 cm
4-8 ára: 43.5 cm
9 ára+:  47 cm

Prjónfestan í þessari uppskrift er sú að 22 lykkjur á prjóna nr. 4.5 gera 10 cm.

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista