Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
Silja hárband
Eyrnabandið / hárbandið er prjónað í hring.
Efni:
Dale Lerke/ Katia Merino 100%
Stærðir:
Newborn
3 – 6 mánaða
6 – 12 mánaða
1 – 2 ára
2 – 4 ára
6 - 10 ára
Það sem þarf:
- 50 gr af garni (gæti þurft meira í stærð 6-10 ára).
- hringprjónn nr. 4 (40 sm langur)
- nál til frágangs
- tölu til skrauts
ATH að uppgefið magn af garni er einungis viðmið þar sem við prjónum öll misfast/-laust.
Ummál bands:
Newborn: 33 sm
3 – 6 mánaða: 35 sm
6 – 12 mánaða: 38 sm
1 – 2 ára: 40 sm
2 – 4 ára: 42 sm
6-10 ára: 47 sm
Ég mæli alltaf með því að mæla höfuð barnsins því börn eru mis höfuðstór og leiðinlegt ef bandið passar ekki.
Prjónfesta
24 lykkjur á prj. nr. 4 = 10 sm