Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
Örkin jólakjóll
Erfiðleikastig: Krefjandi
Kjóllinn er prjónaður ofan frá og niður. Fyrst er hann prjónaður fram og til baka með mynsturprjóni í framstykki og er svo tengdur í hring seinna í ferlinu. Kjóllinn er hnepptur í bakið.
Efni
Along Avec Anna (fæst hér)
Einnig er hægt að nota:
- Merino frá Knitting for Olive (fæst hér)
- Cotton Merino frá Knitting for Olive (fæst hér)
- Lanett frá Sandnes
- Baby Merino frá Drops
- My Fine Wool frá Gepard (fæst hér)
- Baby garn frá Rauma (fæst hér)
- Yaku frá Camarose
Stærðir og magn af garni
3-6 mán: 100 g
6-12 mán: 150 g
12-18 mán: 150 g
18-24 mán: 150-200 g
2-4 ára: 200 g
Það sem þarf
- Hringprjónn nr. 3 (60 cm langur)
- Sokkaprjónar nr. 3
- Nál til frágangs
- 12 mm tölur (5-10 stk)
- Borði til að þræða í mittið (6 mm breiður)
Ummál bolur
3-6 mán: 45 cm
6-12 mán: 48 cm
12-18 mán: 51 cm
18-24 mán: 52 cm
2-4 ára: 55 cm
Prjónfestan í þessari uppskrift er sú að 28 lykkjur á prjóna nr. 3 gera 10 cm með því að nota einn þráð af fingering garni.