Í þessu blaði má finna peysur og jakkapeysur fyrir bæði dömur og herra með norska „fjalla“munstrinu. Þetta klassíska munstur var upphaflega hannað fyrir dömujakka sem finna má í skjalasafni Rauma. Nú hafa þau burstað rykið af þeirri uppskrift og uppfært hana á ýmsan máta, m.a. með ísaumuðum eða laskaermum, og bæði opnum og lokuðum útfærslum.
Uppskriftirnar eru prjónaðar úr Finull og 3 þráða prjónagarni. Báðar týpur af garni eru spunnar úr norskri ull hjá Rauma Ullvarefabrikk. Norsk ull einkennist af góðri endingu, mýkt og seiglu. Þetta gerir það að verkum að flíkurnar þola ýmislegt og halda lögun sinni vel, ár eftir ár. Þær verða líka léttar en hlýjar og með góðri einangrun. Norsk ull er tilvalin í peysur og gönguföt, sem og fínar flíkur sem ganga í arf.
Einnig er til blað með barnauppskriftum með sama mynstri svo að öll fjölskylda geti verið í stíl.
Útgáfuár: 2022
Tungumál: norska
Stærðir í blaði: XS-3XL
Smelltu hér fyrir meiri upplýsingar um uppskriftirnar í blaðinu (á heimasíðu Rauma).