Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

Nótt eftir nótt krakkapeysa - uppskrift

1.100 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Uppskriftin er á íslensku.

Nótt eftir nótt krakkapeysa með rúllukraga

Peysan er prjónuð ofan frá og niður, í hring með laskaútaukningu. Mynsturmyndir eru aftast í uppskrift.

Efni

Þessar tegundir ganga allar:
- Katia Merino Tweed
- Katia Merino Aran 
- Katia Merino Aran Natur 
- Special Aran with Wool

Stærðir og magn af garni
6-12 mán: 250 gr
1-2 ára: 250-300 gr
2-4 ára: 300 gr
4-6 ára: 400 gr
6-8 ára: 500 gr
8-10 ára: 600 gr

ATH að uppgefið magn af garni er einungis viðmið þar sem við prjónum öll misfast/-laust.

Það sem þarf
- hringprjónar nr. 5,5 (40 og 80/100 sm)
   80 sm að stærð 6 ára, getur verið gott að skipta yfir á 100 sm í stærðum 6+ í útaukningarferli, en ekki nauðsynlegt.
- hringprjónar nr. 5-5,5
 60 sm (fyrir stroff á bol)
- sokkaprjónar nr. 5,5-6
- sokkaprjónar nr. 5-5,5 (fyrir stroff á ermum)
- nál til frágangs
- prjónamerki

Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
6-12 mán: 19 sm
1-2 ára: 22 sm
2-4 ára: 25 sm
4-6 ára: 28 sm
6-8 ára: 31 sm
8-10 ára: 34 sm

Ummál á bol
6-12 mán: 55 sm
1-2 ára: 66 sm
2-4 ára: 72 sm
4-6 ára: 78 sm
6-8 ára: 84 sm
8-10 ára: 90 sm

Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
6-12 mán: 21 sm
1-2 ára: 23 sm
2-4 ára: 28 sm
4-6 ára: 30 sm
6-8 ára: 32 sm
8-10 ára: 36 sm

Ummál á ermum
6-12 mán: 20 sm
1-2 ára: 20 sm
2-4 ára: 22 sm
4-6 ára: 25 sm
6-8 ára: 28 sm
8-10 ára: 30 sm

Prjónfestan í þessari peysu er sú að 18 lykkjur á prjóna nr. 5,5 gera 10 sm með því að nota Merino Aran frá Katia.

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista