Sock yarn frá Isager samanstendur af 40% easy wash alpaca, 40% easy wash merino ull og 20% endurunnu nyloni. Garnið hefur góða endingu, er mjög mjúkt og má fara í þvottavél.
Easy wash er umhverfisvænn valkostur við hið mikið notaða klórkerfi sem breytir yfirborði trefjanna þannig að þær skreppa ekki svo auðveldlega saman við þvott. Garnið er framleitt í Þýskalandi og er meðhöndlað með vistvænum oxunarefnum. Garnið hefur vottanirnar Oeko-tex og ZDH (Zero discharge of hazardous chemical). Ólíkt flestu öðru garni sem er þvottekta á markaðnum í dag losar þessi framleiðsla ekki skaðleg efni út í umhverfið.
Sokkagarn hefur ákveðið hlutfall ef gerviefni til þess að geta verið endingargott. Í þessu sokkagarni er því 20% endurunnið nylon. Endurunnið nylon er búið til úr afgangsefni sem er fargað við venjulega nylonframleiðslu.
Innihald: 40% easy wash alpaca, 40% easy wash merinoull, 20% endurunnið nylon
Vigt: 50 gr.
Metralengd: u.þ.b. 193 metrar (50 gr.) eða 388 metrar (100 gr.)
Prjónastærð: 2,5-3,5 mm
Prjónfesta: 24-28 lykkjur
Þvottaleiðbeiningar: Má þvo í þvottavél, 30 gráður.
Grófleikaflokkur: 2 - sport
Framleiðsluland: Perú