Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
Mistur ungbarnagalli
MISTUR ungbarnagalli er hluti af MISTUR línunni frá MeMe Knitting. Gallinn er prjónuð frá hálsmáli fyrst í tveimur stykkjum fram og til baka sem svo eru sameinuð í hring. Bolurinn er prjónaður og síðast ermar.
Stærð |
Garn (aðallitur/aukalitur/mynstur)* |
Yfirvídd |
0-1 mánaða |
100 / 50 / 25 grömm |
44 cm |
1-3 mánaða |
100 / 50 / 25 grömm |
47 cm |
3-6 mánaða |
150 / 50 / 25 grömm |
52 cm |
6-12 mánaða |
150 / 50 / 25 grömm |
55 cm |
1-2 ára |
200 / 100 / 25 grömm |
60 cm |
2-3 ára |
250 / 100 / 25 grömm |
66 cm |
*Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað er við Scout frá Kelbourne Woolens. Á mynd er Aðallitur Graphite, aukalitur Gray og mynsturlitur Strawberry.
GARN
Scout frá Kelbourne Woolens (sýnt á mynd) eða Bébé Soft Wash frá Kremke – fæst í vefverslun MeMe Knitting
ÞAÐ SEM ÞARF
- 3,5 mm hringprjónn (60 cm)
- 4,0 mm hringprjónn (60 cm)
- 3,5 mm sokkaprjónar
- 4,0 mm sokkaprjónar
- Prjónamerki
PRJÓNFESTA
10 cm = 22 lykkjur sléttprjón