Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

1.200 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Ilmur krakkapeysa

Þessi peysa er prjónuð ofan frá og niður, í hring, með gatamynstri í berustykki. Ermar og bolur er prjónað með sléttu prjóni. Stroff í hálsmáli, ermum og á bol er prjónað með snúnum sléttum lykkjum.

Efni
1 þráður af Merinocot frá Lana Gatto og 1 þráður af Mohair (t.d. Angel by Permin eða Silk Mohair frá Lana Gatto).
Fyrir þá sem ekki vilja mohair er hægt að nota t.d. Katia Merino Sport eða Kirei frá Katia, eða Maxi Soft / Nuovo Irlanda frá Lana Gatto. 

Stærðir og magn af garni

Stærð Merinocot Mohair
1-2 ára 150 g 50 g
2-4 ára 200 g 50 g
4-6 ára 200 g 50 g
6-8 ára 250 g 75 g
8-10 ára 250 g 100 g
10-12 ára 300 g 100 g


Það sem þarf

- Hringprjónar nr. 5.5 (40 og 60/80 cm langir)
- Hringprjónn nr. 5 (60/80 cm langur fyrir stroff á bol)
- Sokkaprjónar nr. 5.5
- Sokkaprjónar nr. 5 (fyrir stroff á ermum)
- Nál til frágangs
- Prjónamerki

Lengd bolur, frá handvegi
1-2 ára: 17.5 cm
2-4 ára: 19.5 cm
4-6 ára: 24 cm
6-8 ára: 27 cm
8-10 ára: 31 cm
10-12 ára: 35 cm

Ummál bolur
1-2 ára: 65 cm
2-4 ára: 70 cm
4-6 ára: 75 cm
6-8 ára: 80 cm
8-10 ára: 90 cm
10-12 ára: 97 cm

Lengd ermar, frá handvegi
1-2 ára: 18 cm
2-4 ára: 20 cm
4-6 ára: 23 cm
6-8 ára: 27 cm
8-10 ára: 30 cm
10-12 ára: 35 cm

Ummál ermar
1-2 ára: 23 cm
2-4 ára: 24 cm
4-6 ára: 25 cm
6-8 ára: 27.5 cm
8-10 ára: 30 cm
10-12 ára: 32.5 cm

Prjónfestan í þessari peysu er sú að 18 lykkja á prjóna nr. 5,5 gera 10 cm með því að nota einn þráð af Merinocot og einn þráð af Mohair.

 

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista