Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

1.150 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Þessi uppskrift er á íslensku.

Blik dömupeysa er klassísk dömupeysa með víðu hálsmáli, sem hentar byrjendum jafnt sem lengra komnum. Peysan er prjónuð að ofan frá og niður, ekkert þarf að sauma saman. Þú byrjar sem sagt að prjóna hálskantinn, síðan berustykkið, svo bolinn og að lokum ermarnar. Peysan er prjónuð í sléttu prjóni frá toppi berustykkis alla leið niður bolinn. Peysan er með víðu hálsmáli & fallegum blöðruermum. 

STÆRÐIR & MÁL

Blik dömupeysa er hönnuð með það í huga að hafa u.þ.b. 7-10 cm slaka, sem þýðir að ummál peysunnar ætti að vera um 7-10 cm stærri en þitt ummál. Ummálið er gefið upp sem ummál peysunnar. Því mætti segja að ef þú mælir ummálið yfir brjóstkassann 104 cm skaltu prjóna stærð L (113 cm). 

Stærðirnar XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL eru hannaðar til að passa fyrir brjóstmál 85-90 (90-95) 95-100 (100-105) 105-115 (115-120) 125-130 cm.

Stærðir: XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL

Ummál: 96 (100) 105 (113) 120 (127) 136 cm

Lengd: 50 (50) 53 (56) 59 (62) 66 cm

Prjónfesta: 13 lykkjur x 22 umferðir = 10 x 10 cm í sléttu prjóni á 7 mm prjóna

Prjónar:  7 mm og 6 mm, 40, 80 og/eða 100 cm hringprjónar. 

Tillaga að garni: #1: 1 þráður 300 (300) 350 (350) 400 (450) 500 g Puno frá Rauma Garn (50g = 110m)

Erfiðleikastig: 1 af 5.

Mjög byrjendavæn uppskrift.

Peysan á myndinni er prjónuð úr Puno frá Rauma (1315 - Sand).

MYNDBÖND NOTUÐ Í ÞESSARI UPPSKRIFT:

 

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista