Eco soft er "túpuspunnið" garn úr 68% baby alpakka ull og 32% lífrænni pima bómull. Erfitt er að finna mýkra garn og þess vegna hentar það vel í flíkur fyrir ungabörn og börn. Garnið fæst í 5 litum sem eru náttúrulegir, þar sem engin litaefni voru notuð í framleiðslunni. Þess vegna er einnig hægt að mæla með því fyrir þá sem eru með viðkvæma húð og sem þola venjulega illa ull.
Innihald: 68% baby alpakka ull, 32% lífræn pima bómull
Vigt: 50 gr
Metralengd: u.þ.b. 150 metrar
Prjónastærð: 4-5 mm
Prjónfesta: 20-22 lykkjur
Þvottaleiðbeiningar: Handþvottur.
Grófleikaflokkur: 3 - DK
Framleiðsluland: Perú