Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

1.050 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Þessi uppskrift er á íslensku.

Logn barnapeysa er falleg barnpeysa með einföldu gatamynstri. Peysan er prjónuð að ofan frá og niður svo ekkert þarf að sauma saman. Þú byrjar sem sagt að prjóna stroff í hálsmáli, síðan berustykkið, svo bolinn og að lokum ermarnar. Peysan er prjónuð með gatamynstri frá toppi berustykkis alla leið niður. Allt stroff í peysunni er 1x1 stroff. 

Stærðir: 6-12 mán (1 árs) 2 ára (3-4 ára) 5-6 ára (7-8 ára) 9-10 ára (11-12 ára)

Ummál: 55 (58) 63 (66) 72 (76) 82 (87)

Lengd: 29 (34) 37 (38) 42 (46) 50 (55)  

Prjónfesta: 22 lykkjur x 30 umferðir = 10 x 10 cm í sléttu prjóni á prjóna nr. 4.

Prjónar: 4 mm og 3.5 mm, 40, 80 og/eða 100 cm hringprjónar og sokkaprjónar fyrir ermar.

Tillaga að garni: 150 (150) 200 (250) (250) 300 (350) (400)g Semilla frá BC garn (50g = 160m)

eða

150 (150) 200 (250) (250) 350 (350) (400)g Lerke frá Dale (50g = 115m)

Erfiðleikastig: 3 af 5.

Peysurnar á myndinni eru prjónaðar úr Semilla (122 - Bleikur) og DK Merino Blend frá King Cole (3296 - Dune).

Myndbönd notuð í þessari uppskrift: 


 

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista