Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

1.200 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Uppskriftin er á íslensku.

Ynja barnapeysa

Peysan er prjónuð ofan frá og niður og í hring, með sléttu prjóni og laskaútaukningu.
Peysan er prjónuð með tvíbandaprjóni
- Tveir þræðir af VIP frá Lana Gatto

Stærðir og magn af garni

Stærð VIP
6-12 mán 200 gr (700 m)
1-2 ára 250 gr (900 m)
2-4 ára 250 gr (900 m)
4-6 ára 300 gr (1000m)
6-8 ára 350 gr (1200 m)
8-10 ára 400 gr (1400 m)


Það sem þarf
- Hringprjónar nr. 6 (40 og 60/80 cm langir)
- Hringprjónar nr. 5 (fyrir stroff á bol)
- Sokkaprjónar nr. 6 (ermar)
- Sokkaprjónar nr. 5 (fyrir stroff á ermum)
- Nál til frágangs
- Prjónamerki

Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
6-12 mán: 20 cm
1-2 ára: 22 cm
2-4 ára: 25 cm
4-6 ára: 29 cm
6-8 ára: 32 cm
8-10 ára: 36 cm

Ummál á bol
6-12 mán: 64 cm
1-2 ára: 68 cm
2-4 ára: 71 cm
4-6 ára: 77 cm
6-8 ára: 84 cm
8-10 ára: 90 cm

Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
6-12 mán: 16 cm
1-2 ára: 18 cm
2-4 ára: 20 cm
4-6 ára: 23 cm
6-8 ára: 26 cm
8-10 ára: 30 cm

Ummál á ermum
6-12 mán: 21 cm
1-2 ára: 22 cm
2-4 ára: 23 cm
4-6 ára: 24 cm
6-8 ára: 28 cm
8-10 ára: 31 cm

Prjónfestan í þessari peysu er sú að 18 lykkjur á prjóna nr. 6 gera 10 sm með því að nota tvo þræði af VIP frá Lana Gatto. 

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista