Fallegt heklunálasett frá Prym. Heklunálarnar eru úr áli sem gerir þær léttar og er handfangið sérstaklega mjúkt og þægilegt í notkun. Þessar heklunálar henta vel fyrir ullargarn þar sem oddurinn á nálunum er örlítið oddhvass sem gerir það að verkum að heklunálin rennur mjúklega í gegnum garnið án þess að skemma það.
Í settinu 8 heklunálar í stærðum 2 mm, 2,5 mm, 3 mm, 3,5 mm, 4 mm, 4,5 mm 5 mm og 6 mm. Hver heklunál er 14 cm á lengd.