Highland er spunnið úr Perúskri lambaull. Það sem einkennir þetta garn er að það er skemmtilega yrjótt en garnið er litað með mismunandi litbrigðum áður en það er spunnið. Highland virkar vel eitt og sér en kemur einnig vel út þegar það er prjónað með öðru garni.
Innihald: 100% ull
Vigt: 50 gr.
Metralengd: u.þ.b. 275 metrar
Prjónastærð: 3 mm
Prjónfesta: 27-30 lykkjur
Grófleikaflokkur: 1 - fingering
Þvottaleiðbeiningar: Handþvottur
Framleiðsluland: Perú