Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

1.090 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Uppskriftin er á íslensku.

Rolla barnapeysa

ROLLA barnapeysa er prjónuð ofan frá í hring með skemmtilegum rollum á berustykkinu. Uppskriftin er einföld í framkvæmd og hentar vel byrjendum sem lengra komnum. Tilvalin peysa fyrir káta krakka.

Stærðir Aðallitur Litur 2 Litur 3
1-2 ára 200 gr 50 gr 50 gr
2-4 ára 200 gr 50 gr 50 gr
4-6 ára 250 gr 50 gr 50 gr
6-8 ára 300 gr 50 gr 50 gr
8-10 ára 350 gr 50 gr 50 gr

 

Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf.

GARN

Ég notaði Sandnes Smart, en hægt er að nota allt garn sem passar við prjónfestuna, m.a. Scout eða Semilla sem fæst í vefverslun MeMe Knitting.

ÞAÐ SEM ÞARF                    
  • 3,5 mm hringprjóna - 40 og 60 cm                                               
  • 3,0 mm hringprjón – 60 cm                                           
  • 3,5 mm sokkaprjóna                                               
  • 3,0 mm sokkaprjóna                                             
  • Prjónamerki                                               
  • Nál fyrir frágang 
PRJÓNFESTA

10 cm = 22 lykkjur sléttprjón á 3,5 mm prjóna.

    sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
    janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
    Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
    Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista