Origin er ljúffeng blanda af lífrænni merino ull og dásamlega mjúkri alpakka ull. Þetta garn er fullkomið í alls kyns prjónaverkefni, t.d. mynsturprjón, peysur, trefla, sjöl, hatta og húfur fleira.
Sesia er ítalskt fyrirtæki sem framleiðir umhverfisvænt garn og er með ástríðu fyrir gæðum, umhverfisvernd og framleiðsluferlum sem hafa sem minnst skaðleg áhrif á umhverfið (e. low-impact production processes).
Ullin sem notuð er í garnið kemur frá dýrum sem ræktuð eru á lífrænum bóndabýlum og er ræktunin alveg laus við "mulesing", en það tryggir m.a. velferð dýranna. Garnið er með GOTS og ICEA vottanir sem tryggir gæði þess og sjálfbærni.
Innihald: 70% lífræn merino ull 30% alpakka ull
Vigt: 50 gr.
Metralengd: u.þ.b. 112 metrar
Prjónastærð: 3,5-4 mm
Prjónfesta: 25 lykkjur
Þyngdarflokkur: 2 - sport
Þvottaleiðbeiningar: Má þvo í þvottavél, mest 30 gráður
Framleiðsluland: Ítalía