Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

1.990 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Uppskriftirnar eru á íslensku.

Askur og Embla ungbarnasett

Nafnið á settinu er vitnun í norræna goðafræði. Bræðurnir Óðinn, Vilji og Vé fundu á sjávarströndu tvo trédrumba. Óðinn gaf þeim líf og sál, Vilji gaf þeim málið og Vé gaf þeim vit og skynsemi. Gáfu þeir drumbunum nöfnin Askur og Embla og er af þeim allt mannkynið komið.

Stærðir Garn í peysu Garn í buxur
0-3 mánaða 150 gr. 100 gr.
3-6 mánaða 150 gr. 150 gr.
6-9 mánaða 150 gr. 150 gr.
9-12 mánaða 200 gr. 200 gr.
12-18 mánaða 200 gr. 200 gr.
18-24 mánaða 250 gr. 250 gr.
2-3 ára 250 gr. 250 gr.

Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf.

GARN

Sandnes Merinoull eða annað garn sem passar við prjónfestuna, t.d. Scout eða Bébé Soft Wash sem fæst í vefverslun MeMe Knitting.

PRJÓNFESTA

10 cm = 22 lykkjur sléttprjón á 4 mm prjóna

ASKUR PEYSA

Peysan er prjónuð neðan frá, fram og til baka, með laskúrtöku. Ermar eru prjónaðar í hring. Hnappalisti er prjónaður jafnóðum og er peysunni hneppt vinstra megin. Mynstur er aðeins prjónað að framan.

ÞAРSEM ÞARF
  • 4,0 mm hringprjónn
  • 4,0 mm sokkaprjónar
  • Kaðalprjónn
  • Tölur
  • Prjónamerki
  • Nál fyrir frágang 

 

 

EMBLA BUXUR

Buxurnar eru prjónaðar ofan frá og í hring með mynstri á hvorri hlið. Stuttar umferðir eru prjónaðar að aftan til þess að auka pláss fyrir litla bossa.

ÞAÐ SEM ÞARF      
  • 4 mm hringprjónn
  • 4 mm sokkaprjónar
  • Kaðalprjónn
  • Prjónamerki
  • Nál fyrir frágang
sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista