Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Gröfur barnapeysa
Peysan er prjónuð ofan frá og niður og í hring, með sléttu prjóni og jafnri útaukningu í berustykki og mynsturbekk í berustykki. Hægt er að velja um tvenns konar gröfumyndir.
Þessi uppskrift er snúin: Getur rifið í hjá þeim reynsluminnstu en þeir sem eru vanari rúlla henni upp án þess að blikna.
Efni
Super Soft frá Lana Gatto.
Einnig hægt að nota Baby Alpaca 70 frá Lana Gatto.
Stærðir | Aðallitur | Aukalitir |
6-12 mán | 200 g | 1 dokka af hvorum lit |
1-2 ára | 200-250 g | 1 dokka af hvorum lit |
2-4 ára | 250 g | 1 dokka af hvorum lit |
4-6 ára | 250 -300 g | 1 dokka af hvorum lit |
6-8 ára | 300 g | 1 dokka af hvorum lit |
8-10 ára | 350 g | 1 dokka af hvorum lit |
Það sem þarf
- Hringprjónar nr. 4 (40 og 60/80 cm)
- Hringprjónar nr. 4.5 (40 og 60/80 cm)
- Sokkaprjónar nr. 4 og nr. 4.5
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
Ummál bolur
6-12 mán: 62 cm
1-2 ára: 65 cm
2-4 ára: 68 cm
4-6 ára: 73 cm
6-8 ára: 78 cm
8-10 ára: 85 cm
Prjónfestan í þessari peysu er sú að 21 lykkja á prjóna nr. 4,5 gera 10 cm með því að nota Super Soft frá Lana Gatto.