Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
LOKI lambhúshetta
LOKI er alveg hreint frábært höfuðfat og hentar vel fyrir lítil höfuð – sérstaklega á haustin og á vorin. Kraginn er góður og nær langt niður og hægt er að setja húfuna innan undir peysu eða úlpu til að koma í veg fyrir að það blási á litla hálsa.
Efni:
Klompe Lompe merino ull frá Sandnes garn
Katia Merino Baby
Stærðir
3-6 mán: 50gr
6-9 mán: 100gr
9-12 mán: 100gr
1-2 ára: 100gr
2-3 ára: 100gr
3-4 ára: 100gr
Það sem þarf
- hringprjónn nr. 3.5
- sokkaprjónar nr. 3 (eða hringprjónn nr. 3 til að taka upp kantinn)
- nál til frágangs
- prjónamerki
- 3 stk tölur