Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
Urður Oversized
URÐUR oversized peysa er fyrsta uppskrift af fullorðins flík frá STROFF.
Peysan er í sama stíl og Kári, og sérstakar leiðbeiningar eru í uppskrift fyrir þá sem vilja bæta rúllukraga við.
Peysan er prjónuð ofan frá og niður og í hring.
Efni:
Merino Aran Natur, Merino Sport eða Merino Tweed frá KATIA.
Special Aran frá Stylecraft
Prjónfestan í öllu þessu garni er gefin upp á prjóna nr, 5 en í þessari uppskrift reyndist betra að nota prjóna nr 6 (nema ef þú prjónar mjög laust, þá gætirðu sloppið með prjóna nr. 5). Byrjið á því að gera prjónfestuprufu 😊
Það sem þarf:
- hringprjónar nr. 6 (40, 60 og 80 sm)
- sokkaprjónar nr. 6
- nál til frágangs
- prjónamerki
Hvað þarf mikið af garni miðað við stærð :
XS: 500 gr
S: 600 gr
M: 700 gr
L: 800 gr
XL: 900 gr
ATH að uppgefið magn af garni er einungis viðmið þar sem við prjónum öll misfast/-laust.
Lengd á búk upp að handvegi (með stroffi):
Lengd fer eftir smekk hvers og eins.
XS: 38 sm
S: 42
M:48 sm
L: 52 sm
XL: 56 sm
Lengd á ermum (með stroffi):
XS: 36 sm
S: 42 sm
M: 46 sm
L: 50 sm
XL: 52 sm
Ummál á búk:
XS: 110 sm
S: 115 sm
M: 120 sm
L: 125 sm
XL: 130 sm
Prjónfesta
16 lykkjur á prj. nr. 6 = 10 sm