Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
Rolla barnapeysa
ROLLA barnapeysa er prjónuð ofan frá í hring með skemmtilegum rollum á berustykkinu. Uppskriftin er einföld í framkvæmd og hentar vel byrjendum sem lengra komnum. Tilvalin peysa fyrir káta krakka.
Stærðir | Aðallitur | Litur 2 | Litur 3 |
1-2 ára | 200 gr | 50 gr | 50 gr |
2-4 ára | 200 gr | 50 gr | 50 gr |
4-6 ára | 250 gr | 50 gr | 50 gr |
6-8 ára | 300 gr | 50 gr | 50 gr |
8-10 ára | 350 gr | 50 gr | 50 gr |
Athugið að um áætlað magn er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf.
GARN
Ég notaði Sandnes Smart, en hægt er að nota allt garn sem passar við prjónfestuna, m.a. Scout eða Semilla sem fæst í vefverslun MeMe Knitting.
ÞAÐ SEM ÞARF
- 3,5 mm hringprjóna - 40 og 60 cm
- 3,0 mm hringprjón – 60 cm
- 3,5 mm sokkaprjóna
- 3,0 mm sokkaprjóna
- Prjónamerki
- Nál fyrir frágang
PRJÓNFESTA
10 cm = 22 lykkjur sléttprjón á 3,5 mm prjóna.