Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

750 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Þessi uppskrift er á íslensku.

Gustur vettlingar eru sígildir vettlingar sem falla vel að eigandanum. Vettlingarnir eru prjónaðir að neðan frá og upp í tvöföldu perluprjóni. Báðir vettlingarnir eru prjónaðir eins svo ekki skiptir máli hvort verið sé að prjóna hægri eða vinstri vettling. Vettlingarnir er prjónaðir með tvöföldu perluprjóni en þumallinn er prjónaður í sléttu prjóni. Stroffið er 1x1 stroff. 

STÆRÐIR & MÁL

Gustur vettlingar eru hannaðir þannig að þeir falli vel að lófanum.

Stærðirnar S (M) L (XL)  eru hannaðar til að passa fyrir ummál 17-18 (19-20) 21-22 (23-24) cm, mælt yfir breiðasta part handarinnar.

Stærðir: S (M) L (XL)

Heildarlengd: 25.5 (27) 29 (31) cm

Prjónfesta: 18 lykkjur x 30 umferðir = 10 x 10 cm í sléttu prjóni á 4.50mm prjóna

Prjónar: 4.50 mm & 4.00mm,  hringprjónar (Magic Loop aðferðin).

Tillaga að garni:   #1: 2 þræðir 100 (100) 150 (150) g Tumi frá Rauma Garn (50g = 130m), prjónaðir saman

Annað: Prjónamerki

Erfiðleikastig:  2 af 5.

Hentar vel byrjendum í prjóni sem vilja prufa mynsturprjón! 

Vetlingarnir á myndinni er prjónaðir úr tvöföldum Tumi (2288- grábrúnn).

MYNDBÖND NOTUÐ Í ÞESSARI UPPSKRIFT:

 

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista