Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
Kyrrð ungbarnagalli
KYRRÐ ungbarnagalli er hluti af KYRRÐ línunni frá MeMe Knitting. Gallinn er prjónaður frá hálsmáli og hnappalisti prjónaður jafnóðum. Auðvelt er að lengja eða stytta ermar og skálmar eftir málum barnsins svo gallinn endist sem lengst.
Stærðir |
Ummál á bol |
Garn* |
Nýfætt |
45 cm |
200 gr |
1-3 mánaða |
47 cm |
200 gr |
3-6 mánaða |
49 cm |
200 gr |
6-9 mánaða |
52 cm |
200 gr |
9-12 mánaða |
55 cm |
300 gr |
12-18 mánaða |
59 cm |
300 gr |
18-24 mánaða |
61 cm |
300 gr |
*Athugið að um áætlað magn af garni er að ræða og er ólíkt eftir garni og prjónara hversu mikið þarf. Miðað er við 100gr hespur af Scout frá Kelbourne Woolens.
GARN
Scout(sýnt á mynd) eða Semilla fæst í vefverslun MeMe Knitting
ÞAÐ SEM ÞARF
-
4,0 mm hringprjón
-
4,0 mm sokkaprjóna
-
3,5 mm hringprjón
-
3,5 mm sokkaprjóna
-
Kaðalprjón
-
Tölur
-
Prjónamerki
PRJÓNFESTA
10 cm = 22 lykkjur sléttprjón