My pearl prjónafiskur (umferðarteljari) úr læknastáli.
My Pearl er eftir hönnuðinn Önnu Silfu Þorsteinsdóttur, sem hannar skartgripi undir merkinu Silfa. Hún sækir innblástur í arfleifð íslenskrar þjóðar með áherslu á skart og mynstur liðinna alda auk tengingar við norræna goðaheima.
Hversu skemmtilegt! nú ertu alltaf með teljara á þér frá 1 – 10.
Hálsfestina er einnig hægt að nota sem framlengingu við aðrar keðjur í línunni.
Innihald: 316L læknastál með eða án 18k gyllingar
Lengd: 45 cm keðja , meðfylgjandi 10 cm framlenging
Hönnunin er hugsuð til þess að hver og einn geti stílfært sitt hálsmen á sinn hátt og þar með gert það að sinni Perlu.
Allt skartið í My Pearl línunni er unnið úr 316L læknastáli sem hefur gefist vel gegn ofnæmi.
18K gyllingin er harðgylling og er 8 x sterkari en hefðbundin gylling og ætti að endast í áratugi.