Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

70's barnasett - peysa og húfa

1.500 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Uppskriftin er á íslensku.

70's sett - peysa og húfa

Þessi uppskrift inniheldur bæði peysuna og húfuna í 70's settinu. 
Það er hægt að kaupa þessar uppskriftir stakar. 

Peysan er prjónuð ofan frá og niður og í hring, með sléttu prjóni og laskútaukningu.
Húfan er prjónuð neðan frá og upp og í hring.

Peysuuppskriftin má teljast aðeins snúin því við notum styttar umferðir í henni, en húfuuppskrfitin er einföld.   

Á myndunum sést einnig húfa í stíl við peysuna. Hægt er að kaupa báðar uppskriftirnar saman í setti með því að smella hér. 

 #70'sett

PEYSAN (upplýsingar um húfuna eru neðar á síðunni)

Efni
Katia Merino Sport eða Maxi Soft frá Lana Gatto.
Einnig hægt að nota Katia Merino Aran, Nuovo Irlanda frá Lana Gatto eða Katia Merino Tweed.

Stærðir Aðallitur Aukalitir
6-12 mán 200-250 g 1 dokka af hverjum lit
1-2 ára 200-250 g 1 dokka af hverjum lit
2-4 ára 300 g 1 dokka af hverjum lit
4-6 ára 300 g 1 dokka af hverjum lit
6-8 ára 350 g 1 dokka af hverjum lit
8-10 ára 350 g 1 dokka af hverjum lit


Það sem þarf

- Hringprjónn nr. 5 og 5.5 (40 og 60/80 cm langir)
- Sokkaprjónar nr. 5 og 5.5
- Nál til frágangs
- Prjónamerki

Lengd bolur, frá handvegi
6-12 mán: 15 cm
1-2 ára: 17 cm
2-4 ára: 22 cm
4-6 ára: 28 cm
6-8 ára: 34 cm
8-10 ára: 38 cm

Ummál bolur
6-12 mán: 54 cm
1-2 ára: 60 cm
2-4 ára: 67 cm
4-6 ára: 71 cm
6-8 ára: 79 cm
8-10 ára: 83 cm

Lengd ermi, frá handvegi
6-12 mán: 16 cm
1-2 ára: 19 cm
2-4 ára: 23 cm
4-6 ára: 29 cm
6-8 ára: 35 cm
8-10 ára: 40 cm

Ummál ermi
6-12 mán: 19 cm
1-2 ára: 20 cm
2-4 ára: 22.5 cm
4-6 ára: 25 cm
6-8 ára: 26.5 cm
8-10 ára: 29 cm

Prjónfestan í þessari peysu er sú að 18 lykkjur á prjóna nr. 5,5 gera 10 cm með því að nota Merino Sport frá Katia.

HÚFAN

Efni
Katia Merino Sport eða Maxi Soft frá Lana Gatto.
Einnig hægt að nota Katia Merino Aran, Nuovo Irlanda frá Lana Gatto eða Katia Merino Tweed.

Stærðir Aðallitur Aukalitir
6-12 mán 100 g 1 dokka af hverjum lit
1-2 ára 100 g 1 dokka af hverjum lit
2-4 ára 100 g 1 dokka af hverjum lit
4-8 ára 100 g 1 dokka af hverjum lit
9+ ára 100 g 1 dokka af hverjum lit


Það sem þarf

- Hringprjónn nr. 4.5 (40 cm langur)
- Sokkaprjónar nr. 4.5
- Nál til frágangs
- Prjónamerki

Ummál húfu
6-12 mán: 36 cm
1-2 ára: 38 cm
2-4 ára: 40 cm
4-8 ára: 42 cm
9 ára+: 44 cm

Prjónfestan í þessari húfu er sú að 22 lykkjur á
prjóna nr. 4,5 gera 10 cm með því að nota Merino Sport frá Katia.

 

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista