Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Ástin og ullin
Peysan er prjónuð ofan frá og niður og í hring.
Efni
Love Wool frá Katia
- Litur á mynd er nr. 105
Stærðir og magn af garni
XS - S: 800-900 grömm
M-L: 1000-1100 grömm
XL - XXL: 1200-1300 grömm
ATH að uppgefið magn af garni er einungis viðmið þar sem við prjónum öll misfast/- laust.
Það sem þarf
- hringprjóna nr. 15, 40 og 80/100 sm
- nál til frágangs
- prjónamerki
Lengd á búk upp að handvegi (með stroffi)
XS – S: 34 sm
M – L: 37 sm
XL – XXL: 40 sm
Ummál á búk
XS – S: 110 sm
M – L: 120 sm
XL – XXL: 130 sm
Lengd á ermum
XS – S: 39 sm
M – L: 42 sm
XL – XXL: 45 sm
Ummál á ermum
XS – S: 38 sm
M – L: 42 sm
XL – XXL: 42 sm
Prjónfestan í þessari peysu er sú að 7 lykkjur á prjóna nr. 15 gera 10 sm.