Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

Eldey tveggja dúska húfa - barnauppskrift

850 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Uppskriftin er á íslensku.

Eldey tveggja dúska húfa

ELDEY er prjónuð neðan frá og upp og í hring. Gert er ráð fyrir tveimur dúskum en auðvitað er hægt að hafa einn eða engan.

Efni: Merino 100% frá Katia.

Stærðir og magn:
0-3 mánaða: 50gr
3-6 mánaða: 50gr 
6-12 mánaða: 50gr 
1-2 ára: 100gr 
2-4 ára: 100gr 
4-6 ára: 100gr 

ATH að uppgefið magn af garni er einungis viðmið þar sem við prjónum öll misfast/-laust.

Það sem þarf:
- hringprjónn nr. 4 (40 sm langur)
- sokkaprjónar nr. 4
- nál til frágangs
- prjónamerki
- ein tala
- tveir dúskar

Ummál:
0-3 mánaða: 33 sm
3-6 mánaða: 36 sm
6-12 mánaða: 38 sm
1-2 ára: 40 sm
2-4 ára: 42 sm
4-6 ára: 45 sm

Prjónfesta
24 lykkjur á prjóna nr. 4 = 10 sm

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista