Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

Gustur barnapeysa

1.050 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Þessi uppskrift er á íslensku.

Gustur barnapeysa er prjónuð að ofan frá og niður svo ekkert þarf að sauma saman. Þú byrjar sem sagt að prjóna stroff í hálsmáli, síðan berustykkið, svo bolinn og að lokum ermarnar. Peysan er prjónuð með tvöföldu perluprjóni frá toppi berustykkis alla leið niður. Allt stroff í peysunni er 1x1 stroff. Mynstrið heldur lögun sinni í gegnum alla flíkina og má sjá hér að neðan.

STÆRÐIR & MÁL

Gustur barnapeysa er hönnuð með það í huga að hafa u.þ.b. 5-10 cm slaka. Ummálið er gefið upp sem ummál peysunnar. Því mætti segja að ef þú mælir ummálið yfir brjóstkassann 65 cm skaltu prjóna stærð 5-6 ára (70 cm).

Stærðir: 6-12 mán (1 árs) 2 ára (3-4 ára) 5-6 ára (7-8 ára) 9-10 ára (11-12 ára)

Ummál: 57 (60) 65 (68) 70 (77) 80 (85) cm

Lengd: 29 (34) 37 (38) 42 (46) 48 (50) cm

Prjónfesta: 19 lykkjur x 32 umferðir = 10 x 10 cm í sléttu prjóni á prjóna nr 5

Prjónar: 5 mm og 4 mm, 40, 80 og/eða 100 cm hringprjónar.

Tillaga að garni:    

#1: 1 þráður 150 (150) 200 (200) 250 (300) 350 g Alpakka Ull frá Sandnes Garn (50g = 100m)
#2: 1 þráður 150 (150) 200 (200) 250 (300) 350 g Léttlopi frá Lopa (50g = 100m)

Erfiðleikastig: 2 af 5.

Hentar vel byrjendum í prjóni sem vilja prufa mynsturprjón! 

Peysan á myndinni er prjónuð úr Léttlopa (0051 - hvítur).

Myndbönd notuð í þessari uppskrift:



sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista