Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Haustlægð húfa
Húfan er prjónuð neðan frá og upp, í hring með sléttu prjóni. Kanturinn er prjónaður inn á við.
Peysan er prjónuð með tvíbandaprjóni
- Einn þráður af Feeling frá Lana Gatto
- Einn þráður af Angel by Permin eða Silk Mohair frá Lana Gatto
Stærðir og magn af garni
Stærð | Feeling | Mohair |
1-4 ára | 50 gr | 25 gr |
5-8 ára | 50 gr | 25 gr |
9-12 ára | 50 gr | 25 gr |
S/M (fullorðins) | 50 gr | 25 gr |
L/XL (fullorðins) | 100 gr | 25 gr |
Það sem þarf
- Hringprjónn nr. 4.5 (40 cm)
- Hringprjónn nr. 5 (40 cm)
- Sokkaprjónar nr. 5
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
Ummál
1-4 ára: 36 cm
5-8 ára: 38 cm
9-12 ára: 40 cm
S/M: 42 cm
L/XL: 45 cm
Prjónfestan í þessari húfu er sú að 20 lykkjur á prjóna nr. 5 gera 10 cm með því að nota einn þráð af Feeling og einn þráð af mohair.