Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

Logn golla barnapeysa

1.050 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Þessi uppskrift er á íslensku.

Logn barnagolla er falleg golla með einföldu gatamynstri. Gollan er prjónuð að ofan frá og niður, fram og til baka,  svo ekkert þarf að sauma saman. Þú byrjar sem sagt að prjóna stroff í hálsmáli, síðan berustykkið, svo bolinn og að lokum ermarnar. Gollan er prjónuð með gatamynstri frá toppi berustykkis alla leið niður. Allt stroff í peysunni er 1x1 stroff. 

Stærðir: 6-12 mán (1 árs) 2 ára (3-4 ára) 5-6 ára (7-8 ára) 9-10 ára (11-12 ára)

Ummál: 55 (58) 63 (66) 72 (76) 82 (87)

Lengd: 29 (34) 37 (38) 42 (46) 50 (55)  

Prjónfesta: 22 lykkjur x 30 umferðir = 10 x 10 cm í sléttu prjóni á prjóna nr. 4.

Prjónar: 4 mm og 3.5 mm, 40, 80 og/eða 100 cm hringprjónar og sokkaprjónar fyrir ermar.

Tillaga að garni: 150 (150) 200 (200) 250 (350) 400 (400) g Semilla frá BC garn (50g = 160m)

eða

150 (200) 200 (250) 250 (350) 400 (400) g Lerke frá Dale (50g = 115m)

Erfiðleikastig: 3 af 5.

Peysan á myndinni eru prjónuð úr Duo frá Sandnes Garn (2652 - Ljósgrábrúnn).

Mynbönd notuð í þessari uppskrift: 

 

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista