Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum stað, þar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.
Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.
Uppskriftin er á íslensku.
Nótt eftir nótt barnapeysa
Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka með laskaútaukningu og mynstri. Ítarlegar og góðar mynsturmyndir og útskýringar eru í uppskriftinni.
Efni
Katia Merino Baby
Stærðir og magn af garni
NB: 100 gr
3-6 mán: 100 gr
6-12 mán: 100-150 gr
1-2 ára: 150 gr
2-4 ára: 200 gr
4-6 ára: 250 gr
ATH að uppgefið magn af garni er einungis viðmið þar sem við prjónum öll misfast/-laust.
Það sem þarf
- hringprjónar nr. 3,5 (60 eða 80 sm)
- sokkaprjónar, eða CraSyTrio nr. 3,5
- nál til frágangs
- prjónamerki
- tölur
Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
NB: 16 sm
3-6 mán: 18 sm
6-12 mán: 19 sm
1-2 ára: 23 sm
2-4 ára: 27 sm
4-6 ára: 30 sm
Ummál á bol
NB: 46 sm
3-6 mán: 49 sm
6-12 mán: 57 sm
1-2 ára: 62 sm
2-4 ára: 69 sm
4-6 ára: 77 sm
Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
NB: 16 sm
3-6 mán: 17 sm
6-12 mán: 18 sm
1-2 ára: 24 sm
2-4 ára: 28 sm
4-6 ára: 31 sm
Ummál á ermum
NB: 17 sm
3-6 mán: 17 sm
6-12 mán: 19 sm
1-2 ára: 21 sm
2-4 ára: 23 sm
4-6 ára: 25 sm
Prjónfestan í þessari peysu er sú að 26 lykkjur á prjóna nr. 3,5 gera 10 sm með því að nota Merino Baby frá Katia.