Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

Rok dömupeysa

1.150 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Þessi uppskrift er á íslensku.

Rok peysa er víð peysa með stórum rúllukraga. Peysan er prjónuð að ofan frá & niður, fyrst fram og til baka, síðan í hring. Mynstrið í peysunni er prjónað í klukkuprjóni en stroffið í 1x1 stroffprjóni.  

Fyrst er hálft bakstykkið prjónað fram & til baka, frá hnakka að handarkrika. Því næst eru teknar upp lykkjur sitt hvoru megin við háls, hálsmálið mótað & hálft efra framstykki prjónað fram & til baka, að handarkrika. Því næst er búkurinn sameinaður og prjónaður í hring. Lykkjur eru teknar upp fyrir ermum, prjónað í hring frá handarkrika að úlnlið. Að lokum eru teknar upp lykkjur fyrir rúllukraga. Ekkert þarf að sauma saman.

STÆRÐIR & MÁL

Peysan Rok er hönnuð með það í huga að hafa um 20 cm slaka. Ummálið er gefið upp sem ummál peysunnar, því mætti segja að ef þú mælir ummálið þitt yfir brjóstkassann 95 cm skaltu prjóna stærð M (114 cm). Peysan er hönnuð sem víð peysa með stórum rúllukraga.

Stærðirnar XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL eru hannaðar til að passa fyrir brjóstmál 80-86 (86-93) 94-100 (101-109) 110-115 (116-125) 125-133 cm

Stærðir: XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL

Ummál peysu: 103 (109) 114 (126) 131 (137) 148 cm

Lengd peysu: 51 (53) 55 (56) 58 (60) 61 cm

Prjónfesta: 14 lykkjur x 36 umferðir = 10 x 10 cm í klukkuprjóni á 4.5 mm prjóna
(Vinsamlegast athugið að 36 umferðir í klukkuprjóni eru taldar sem 18 umf slétt prjón)
20 lykkjur x 24 umferðir = 10 x 10 cm í sléttu prjóni á 4.5 mm prjóna

Prjónar:  4.5 mm, 40, 80 og/eða 100 cm hringprjónar og sokkaprjónar. 

Tillaga að garni:

#1: 1 þráður 550 (550) 600 (650) 650 (700) 750 g Léttlopi frá Ístex Lopi (50g = 100m).

Erfiðleikastig:                5 af 5.

Peysan á myndinni er prjónuð úr Léttlopa (0056- ljósgrár).

Myndbönd notuð í þessari uppskrift:


sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista