Þessi verkefnataska er afar hagkvæm sem geymsla fyrir öll helstu sauma og prjónaáhöldin þín. Auðvelt er að taka hana með hvert sem er því það fylgir axlaról sem auðvelt er að setja á og taka af. Í töskunni eru margvísleg hólf til að geyma smáhluti. Einnig er stórt hólf með færanlegum skilrúmum. Tilvalið er að geyma prjónaverkefni í stóra hólfinu og áhöldin í renndum vasanum eða litlum hólfum. Taskan er gerð úr hörðu efni sem gerir það að verkum að allt helst á sínum stað.
Stærð: 34 x 24 x 11,5 cm
Efni: 100% polyamide
Litur: rauð