Eco Vita endurunna bómullar T-shirt garnið er 100% endurunnið úr stuttermabolaefni. Garnið er tilvalið til að hekla og prjóna úr ýmsa hluti svo sem töskur, mottur, körfur og fleira. Þar sem garnið er endurunnið getur verið mismunur á litatónum og ekki víst að liturinn passi við myndir í vefverslun.
Eco Vita T-shirt garnið er með OEKO-TEX vottun og er grænkeravænt (vegan).
Innihald: 95% endurunnin bómull, 5% lycra
Vigt: 450 gr.
Metralengd: u.þ.b 100 metrar
Prjónastærð: 10 - 12 mm
Þvottaleiðbeiningar: handþvottur
Grófleikaflokkur: 6 - super bulky
Framleiðsluland: Tyrkland