Heiðarprjón
Heiðarprjón er falleg prjónabók eftir Lene Holme Samsøe. Bókin samanstendur af 25 nýjum uppskriftum sem margar hverjar eru sýndar í nokkrum útgáfum, svo þú getur fengið innblástur til að gera prjónaverkefnið að þínu eigin.
Lene Holme gerir fallegar prjónaflíkur og eru uppskriftirnar hennar ávallt skýrar og einfaldar. Í þessum uppskriftum má finna m.a. gatamynstur, kaðlaprjón og vönduð smáatriði í prjóninu. Uppskriftir af peysum, blússum og opnum peysum ásamt vesti og pilsi er að finna í bókinni, ein einnig smærri verkefni eins og sokka, trefla og vettlinga.
Flestar uppskriftirnar eru í stærðum frá XS til 4XL.
Í Heiðarprjóni eru áskoranir fyrir flesta prjónara, og eru uppskriftirnar kryddaðar með góðum prjónaráðum. Erfiðleikastig uppskriftanna er frá því að vera tiltölulega einfalt og yfir í flóknari.
Heiðarprjón er íslensk þýðing á bókinni Heatherhill.
Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórsdóttir þýddu.
Höfundur: Lene Holme Samsøe
Útgáfuár: 2023
Tungumál: íslenska