Amma mús Fákafeni 9, 108 Reykjavík

Opið 10-18 virka daga og 11 - 15 á laugardögum

Sími 511 3388

1.150 kr

Virðisaukaskattur innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast út við kaup á vöru.
Uppselt

stk. til á lager

Þessi uppskrift kemur í rafrænu pdf formi sem þú færð aðgang að þegar kaup hafa verið framkvæmd. Eftir kaup munt þú fá senda slóð í tölvupósti sem vísar á síðu þar sem hægt er að hlaða niður uppskriftinni. Við mælum með að vista uppskriftina á góðum staðþar sem það er eingöngu hægt að hlaða uppskriftinni niður í þrjú skipti í gegnum hlekkinn í tölvupóstinum.

Stundum lendir tölvupósturinn með slóðinni í spam- eða ruslpósti, ef þú hefur ekki fengið slóðina eftir kaup er gott að kíkja þangað fyrst áður en haft er samband við okkur.

Þessi uppskrift er á íslensku.

Peysan Dimma er klassísk peysa með stórum rúllukraga. Peysan er prjónuð að ofan frá & niður, fyrst fram og til baka, síðan í hring. Mynstrið í peysunni er prjónað í öfugu hálfklukkuprjóni en stroff neðst á ermum og á bol í 1x1 stroffprjóni.  

Fyrst er hálft bakstykkið prjónað fram & til baka, frá hnakka að handvegi. Því næst eru teknar upp lykkjur sitt hvoru megin við háls, hálsmálið mótað & hálft efra framstykki prjónað fram & til baka að handvegi. Því næst er búkurinn sameinaður og prjónaður í hring. Lykkjur eru teknar upp fyrir ermum og prjónað í hring frá handvegi að úlnlið. Að lokum eru teknar upp lykkjur fyrir rúllukraga. Ekkert þarf að sauma saman.

STÆRÐIR & MÁL

Peysan Dimma er hönnuð með það í huga að hafa um 15-20 cm slaka. Ummálið er gefið upp sem ummál peysunnar. Því mætti segja að ef þú mælir ummálið þitt yfir brjóstkassann 94 cm skaltu prjóna stærð M (113 cm). Peysan er hönnuð sem passlega víð peysa með stórum rúllukraga.

Stærðirnar XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL eru hannaðar til að passa fyrir brjóstmál 80-85 (86-92) 93-100 (101-112) 113-119 (120-125) 125-133 cm

Stærðir: XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL

Ummál: 100 (107) 113 (127) 133 (140) 150 cm

Lengd: 54 (55) 57 (60) 62 (64) 65 cm

Prjónfesta: 12 lykkjur x 30 umferðir = 10 x 10 cm í hálfklukkuprjóni á 6.00 mm prjóna
(Vinsamlegast athugið að 30 umferðir í hálfklukkuprjóni eru taldar sem 15 umf slétt prjón)
18 lykkjur x 25 umferðir = 10 x 10 cm í sléttu prjóni á 5.50 mm prjóna

Prjónar: 6.00 mm & 5.50 mm, 40, 60, 80 og/eða 100 cm hringprjónar  og/eða sokkaprjónar.

Tillaga að garni:    

#1: 1 þráður 400 (450) 450 (500) 550 (600) 600 g Heavy Merino frá Knitting for Olive (50g = 125m) saman með 1 þráður 100 (100) 125 (125) 150 (150) 150 g Soft Silk Mohair frá Knitting for Olive (25g = 225m).

#2: 2 þræðir 450 (500) 550 (600) 650 (700) 750 g Plötulopi frá Ístex (100g = 300m)

Erfiðleikastig: 5 af 5.

Peysan á myndinni er prjónuð úr Heavy Merino (Nordstrand / Nordic Beach) og Soft Silk Mohair (Havre / Oat).

MYNDBÖND NOTUÐ Í ÞESSARI UPPSKRIFT:

sunnudagur,mánudagur,þriðjudagur,miðvikudagur,fimmtudagur,föstudagur,laugardagur
janúar,febrúar,mars,apríl,maí,júní,júlí,ágúst,september,október,nóvember,desember
Ekki eru til nógu margar vörur á lager. Einungis [max] eftir.
Bæta við óskalistannSkoða óskalistaEyða óskalista