Ullaræði 2 er litrík og fjölbreytt prjónabók þar sem íslenski lopinn er í hávegum hafður.
Í bókinni eru rúmlega tuttugu uppskriftir, flestar að heilum peysum sem henta bæði fyrir konur og karla.
Höfundur bókarinnar er finnski hönnuðurinn Heli Nikula en hún sló í gegn fyrir örfáum árum síðan með peysuuppskrift úr íslenskum lopa og hefur hún verið áberandi á samfélagsmiðlinum Instagram. Síðan þá hefur hún hannað hverja flíkina á fætur annarri undir nafninu Villahullu, sem þýðir eins konar ullaræði, og er orðið þekkt nafn um allan heim. Aðdáendum íslenska lopans hefur fjölgað gífurlega í kjölfar Villahullu svo það má segja að hér hafi ýtt undir mikið ullaræði.
Guðrún Hannele Henttinen þýddi.
ATH. Vegna ábendingar um öryggi barna er mælt með að snúrunni í hærri útgáfunni af hálskraga barnapeysunnar Gleði á bls. 164–173 sé sleppt eða lága útfærslan valin.
Höfundur: Heli Nikula
Blaðsíður: 289
Útgáfuár: 2023
Umbrot: Harðspjalda
Tungumál: Íslenska